Í vinnu minni með fjölmörgum söludeildum hef ég tekið eftir að mjög oft vantar skýrleika. Markmiðin eru kannski þekkt, en leiðin að þeim óljós.
Söluráðgjafar þurfa og eiga að fá skýr svör við einföldum spurningum:
Markmið: Hverju á ég að ná og hvenær?
Væntingar: Hvernig vinnubrögð er ætlast til af mér?
Ábyrgð: Hverju ber ég ábyrgð á og hvernig fylgi ég eigin verkefnum eftir?
Tilgangur: Hvernig hjálpa CRM og skráningar mér að ná árangri?
Skipulag: Hvað fær forgang og hvenær vinn ég mikilvægustu söluverkefnin?
Endurgjöf: Hvað geri ég vel og hvað þarf ég að bæta?
Það er erfitt að standa undir væntingum sem hafa aldrei verið gerðar skýrar.
Er söluteymið þitt með sama skilning á markmiðum og væntingum og þú?
Skýrleiki
Next
Next